Betri samskipti byrja á einu samtali
Gefðu þér 36 sekúndur – kynntu þér Samtalið.
-

Í Samtalinu
Góð samtöl geta breytt svo miklu.
Stundum þurfum við aðeins að staldra við, skoða eigin hugsanir og finna nýjar leiðir í samskiptum.
Í Samtalinu deili ég hugleiðingum, fróðleik og litlum verkefnum um mörk, sjálfsþekkingu og samskipti.
Komdu með Í Samtalið
Fáðu hvetjandi og fræðandi sunnudagspóst beint í pósthólfið þitt.
-

Lausnahringurinn – lausnir fyrir lífið
Við þjálfum samskipti áður en vandinn verður til.
Lausnahringurinn er einfalt verkfæri með sjö lausnum sem hjálpa börnum og fullorðnum að setja mörk, skilja tilfinningar og finna lausnir saman.
Sameiginlegt tungumál fyrir heimili, leikskóla og grunnskóla.
Litlar æfingar í dag – færni fyrir lífið.
-

Samtalið - einkasamtal
Breyting byrjar oft með einu samtali.
Ertu á tímamótum, þarft að setja mörk eða finna betra jafnvægi í lífinu?
Í einkasamtalinu færðu öruggt rými til að staldra við, skoða eigin styrkleika og finna næstu skref.
Ég byggi á áratuga reynslu minni af mannlegum samskiptum og leiðsögn.
Við byrjum þar sem þú ert í dag.
Starfa rafrænt og á staðnum
Umsagnir